Fréttir

Höfðaskóli fær 20 fartölvur að gjöf

Sagt er frá því á heimasíðu Höfðaskóla á Skagaströnd að í vetur sótti skólinn um styrk hjá Forriturum framtíðarinnar og fékk í morgun þær gleðifréttir að styrkumsóknin hafi verið samþykkt. Styrkurinn felst í 20 notuðum fartölvum sem Landsbankinn gefur og munu þær nýtast í kennslu á unglingastigi skólans.
Meira

24 kandídatar útskrifaðir í blíðskaparveðri á Hólum

Brautskráningarathöfn Hestafræðideildar Háskólans á Hólum fór fram í blíðskaparveðri á Hólum í Hjaltadal laugardaginn 23. maí. Dagurinn hófst á glæsilegri reiðsýningu brautskráningarkandídata á aðalreiðvelli skólans, þar sem brautskráningarkandídatar í BS námi í reiðmennsku og reiðkennslusýndu hesta sem þeir hafa unnið með í náminu og hluta þeirra prófa sem þeir hafa lokið.
Meira

„Ég vil sjá hugrakkt, ákaft og skipulagt lið"

Spánverjinn Carlos Dominguez Requena, eða Domi, er þjálfari kvennaliðs Tindastóls í fótbolta. Hann kom fyrst til landsins sem leikmaður árið 2018 og lék alls tvö tímabil með Kormáki/Hvöt og fjögur tímabil með Tindastól. Eftir að hafa spilað með Húnvetningum í fyrra lagði hann skóna á hilluna til að snúa sér alfarið að þjálfun. Þetta er hans fyrsta tímabil með meistaraflokk og fékk Feykir hann í spjall um sumarið fram undan.
Meira

Auglýst eftir læknum á Blönduós

Heilbrigðisstofnun Norðurlands auglýsir eftir yfirlækni og lækni til starfa á starfstöð stofnunarinnar á Blönduósi. Á Húnahorninu segir Helga Margrét Jóhannesdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis og staðarumsjónarmaður HSN á Blönduósi, að verið sé að leita að metnaðarfullum og framsæknum læknum sem vilja taka þátt í að byggja upp öfluga og stöðuga læknamönnun til framtíðar. „Markmið okkar er að tryggja samfellu í þjónustu, bæta aðgengi íbúa að heilbrigðisþjónustu og viðhalda okkar faglega, styðjandi og eftirsóknarverða vinnuumhverfi,“ segir Helga Margrét.
Meira

Fá ríkjandi bikarmeistara í heimsókn

Í 32-liða úrslitum Gatorade bikarsins fá Kormákur/Hvöt lið Víkings Ólafsvíkur í heimsókn. Víkingur Ólafsvík er ríkjandi bikarmeistari en á síðustu leiktíð hét þessi bikarkeppni Fótbolti.net bikarinn. Leikurinn fer fram á Blönduósvelli klukkan 18:00 í kvöld, 27. maí.
Meira

Skólaferðalag yngstu nemenda Varmahlíðarskóla á Krókinn

Mánudaginn 18. maí héldu nemendur 1. - 3. bekkjar Varmahlíðarskóla af stað í skólaferðalagið. Að þessu sinni voru það 28 nemendur ásamt umsjónarkennurum og tveimur stuðningsfulltrúum sem ferðuðust saman.
Meira

Gatorade bikarinn hefst í dag

Gatorade bikarinn hefst í dag. Tindastólsmenn halda suður og spila þar við lið Hvíta Riddarans klukkan 19:15. Frítt er inn á leikinn og því eru allir stuðningsmenn Tindastóls fyrir sunnan hvattir til þess að skella sér á leik í Malbiksstöðinni að Varmá.
Meira

Sjónhorn og Feykir fara í dreifingu á fimmtudegi

Þar sem hvítasunnuhelgin dróst að venju aðeins inn í vikuna þá fóru Sjónhorn og Feykir ekki suður í prentun fyrr en seinni partinn í gær og ættu því að fara í dreifingu á morgun, fimmtudag. Bæði blöðin eru þó að detta inn á netið og þeir sem eru með rafræna áskrift geta lesið Feyki á netinu og Sjónhornið er að sjálfsögðu öllum opið.
Meira

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins mætir á morgun

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins heimsækir Hofsós á morgun, miðvikudaginn 27 maí, en einnig mun skipið stoppa fyrir utan Drangey. Fleyið ber nafnið MS Seaventure en um er að ræða lítið leiðangursskip fyrir siglingar á heimskautasvæðum eins og Suðurskautslandinu, Grænlandi, Íslandi og Svalbarða.
Meira

Kiwanismenn komu færandi hjálma

Síðastliðinn föstudag komu fulltrúar Kiwanisklúbbsins Drangeyjar og færðu öllum nemendum 1. bekkjar Höfðaskóla á Skagaströnd forláta reiðhjólahjálma og grilluðu í leiðinni pylsur fyrir nemendurna.
Meira